Auglýsing

dagsins?

Nobody really cares if you're miserable, so you might as well be happy.

Alicante djamm

Ingibjörg Elín kemur í heimsókn til mín

Hætti að vinna í Ciudad Real

Innskráningar kubbur

Monako-ítalía-austurríki-ítalía-ísland

22. júlí 2008 klukkan 15:09
Já, ég fór frá Montpellier....fór til Monakó sem er flottasta land sem ég hef komið til, get ekki lýst því, þú verður bara að fara þangað. Svo keyrðum við til Ítalíu, vorum í eitthverjum garði þar í frekar marga daga, svo fórum við á annan stað á Ítalíu, uppí alpana og vorum á fjallahóteli (KLIKKAÐ) og svo til austurríkis og fórum á mcdonalds þar og keyrðum síðan aftur til baka til ítalíu (flipp).

Svo var kominn 31.júlí og við keyrðum til Mílanó til þess að fara að fljúga til ÍSLANDS. ég svaf nánast ekkert síðustu nóttina útaf stressi/spenningi/tilhlökkun/ ekki tilhlökkun.... veit ekki.
Komum á flugvöllinn í Mílanó og þar hitti ég BYLGJU æðislegu óléttu. Skrýtið að sjá hana með bumbuna :) svo hitti ég líka Birgittu fyrrverandi leikstjórann minn og hún var líka með bumbuna útí loftið, vissi ekki einusinni að hún hefi verið ólétt :) gaman af þessu. Þær styttu mér allavegana biðina eftir að við máttum fara útí flugvél :)

Þegar við komum út úr flugstöðinni var KALT og allt mjög íslenskt. Tók eftir að turninn á smáratorgi var alveg tilbúinn og það er komin verslunarmiðstöðin Lindir í hverfið mitt! Spes. :)

Fyrstu dagarnir fóru bara í það að hitta allt fólkið mitt aftur sem var algjört æði :D er enn að hitta nokkra og nokkra sem ég hef ekki séð síðan áður en ég fór út. Er búin að eyða endalausum tíma með Katerinu sem er búið að vera snilld!

Svo á næstu helgi er ég að fara vestur til að hitta enn fleiri ! hef nú ekki komið þangað í rúmlega ár, svo að það er alveg kominn tími á það =)  Svo á miðvikudaginn eftir næstu helgi er ég að fara á ÞJÓÐHÁTÍÐ í eyjum! wow hvað ég get ekki beðið :) svo nokkrum dögum eftir að ég kem þaðan er ég að fara aftur til spánar með fullt af sjúklega skemmtilegum krökkum...erum eitthvað í kringum 10 held ég sem erum að fara..svo tekur bara Mk við! þessi tími sem ég var úti og allt í kringum það er búinn að vera ÆÐI!

Montpellier

19. júní 2008 klukkan 18:06
Jæja, ég er búin að yfirgefa Spán......elsku Spán, í fyrsta skiptið í 105 daga. Það var sorglegt. Ég er pottþétt á að Spánn saknar mín strax sjúklega mikið, næstum jafn mikið og ég sakna hans! Hann hvíslaði að mér að hann væri ekkert án mín. Hann ætti samt ekki að örvænta, ég fer aftur til Spánar 12.ágúst.

Fórum með lest til Frakklands í dag eftir að hafa eytt þrem yndislegum dögum í Barcelona. Leigðum okkur hjól og hjóluðum um borgina, skoðuðum La Sagrada Familia kirkjuna, Gaudí garðinn, löbbuðum Römbluna oftar en tíu sinnum og margt fleira skemmtilegt!

Núna erum við í Frakklandi í bæ sem heitir Montpellier og verðum hér í allavegana tvo daga, meira er ekki planað...eina sem við vitum er að við eigum pantað flug til Íslands frá Milanó 30.júní.
Frekar spennó.

Dæmisagan um Dagný og senegal manninn.
Afþví að Dagný er vitleysingur og var mjög mjög þreytt þá ákvað hún að fara heim á undan vinkonum sínum þegar hún var í Alicante fyrir nokkrum dögum. Hún var ekki viss hvar hótelið sitt væri en hún vissi það svona nokkurnveginn. Hún ákvað að labba bara af stað í háu hælunum sínum í von um að finna leigubíl. Bensínverðið um þessar mundir er mjög hátt svo að skortur er á leigubílum allstaðar og hún fann ekki neinn einasta leigubíl....hún labbaði mjög lengi ein og í marga hringi og allir sem hún spurði sögðust ekki hafa hugmynd um hvar þetta hótel væri.
Þangaðtil að hún var að labba og mjög svo dökkur maður kallaði á hana, hún þóttist ekkert heyra og labbaði enn hraðar í burtu. Þá kemur hann til hennar og byrjar að spjalla, segist vera frá Senigal (hún var samt löngu búin að átta sig á því). Hann spyr hvort að hún sé villt og hún jánkar því. Hann segist vita hvar hótelið mitt væri, en hún var samt óörugg og vildi ekki fylgja þessum ókunna manni. Hann labbar því 5 metra á undan henni og leyfir henni að elta sig....hann fann hótelið hennar og segir við hana gjörðusvovel og eigðu gott líf og ekki labba ein aftur...Dagný var mjög þakklát.
og HISSA. Bjóst ekki við þessu en það er greinilega til fleira gott fólk í heiminum en ég hélt :)


En jæja... meira seinna:) Au Revoir !! (ekki að fíla frönskuna)

alicante otra vez

14. júní 2008 klukkan 19:09
Jæja þá er ég aftur komin til Alicante! Ég, Kristín og krakkarnir keyrðum hingað á fimmtudaginn og þau flugu til Íslands en ég varð eftir...fór strax að hitta Dísuna mína! :D ég, hún og Áróra og fleiri krakkar erum eiginlega bara búin að vera á djamminu, sofandi og á ströndinni...lífið er ljúft :)
Svo kemur fjölskyldan mín hingað annað kvöld og á mánudaginn förum við til Barcelona! stuð ;)

ég á engar myndir..því að ég er löt :)

jæja erum að fara út að borða ..... adios!

já okei !

06. júní 2008 klukkan 23:39
Búin að vera tölvulaus í 1 og hálfa viku.... öss. Hleðslutækið mitt ákvað bara að skemmast, en mamma mín var svo góð að senda mér nýtt í pósti :D

Ingibjörg Elín kom í heimsókn til mín í síðustu viku og var í heila viku, það var svooo gaman :D þó það hefði verið betra ef hún hefði verið hér í þessari viku því það er miklu betra veður núna..en allavegana, létum það nú ekkert á okkur fá! Sótti hana á flugvöllinn til Madrid á þriðjudeginum og við fórum út að borða og aðeins að kíkja í búðir og svona í Madrid og tókum svo lestina hingað um kvöldið.... vá það er svo langt síðan að ég man eiginlega ekkert hvað við vorum að gera, allavegna! Á föstudeginum fórum við aftur til Madrid og fórum að skoða Real Madrid leikvanginn, fórum í svona tour og fengum að fara inní klefana og allt :D mjög skemmtilegt hehe! Tókum, eða Ingibjörg tók milljón myndir... Fórum svo að versla og svo heim bara seinnipartinn. Humm pæling, hvað gerðum við meira...ég man ekkert! Jú við fórum til Toledo með Kristínu og krökkunum í dagsferð, þau fóru á einum bíl og við tvær á einum bíl :) mjög skemmtilegt..Allavegana, set myndirnar inn þegar ég er búin að fá þær hjá Ingibjörgu :) Þetta var mjög skemmtileg vika...gaman að fá svona tilbreytingu, næst síðustu vikuna mína hér!

Jébb, núna er síðasta vikan mín hér... eftir 5 daga keyrum ég, Kristín og krakkarnir til Alicante og þau fara til íslands en ég verð eftir í Alicante í góðum félagsskap og er planið að skemmta sér eins og enginn sé morgundagurinn þessa helgina. SVO á sunnudeginum kemur fjölskyldan mín til Alicante og við förum í ferðalag....Komið smá plan, förum til Barcelona og verðum þar í eitthverja daga, svo til Monte eitthvað í Frakklandi og verðum þar í sjúskaðri stemningu í nokkra daga einnig og svo til Ítalíu og eitthvað meira sem verður bara að ráðast seinna býst ég við, en eitt er ákveðið, að ég kem til íslands 30.júní ! reyndar um nóttina, semsagt eiginlega 31.júní......skrýtið. Langar að vera lengur á spáni en langar samt svo að hitta allt fólkið mitt :)

Reyndar er nú ekkert langt þangaðtil ég fer til spánar aftur eftir að ég kem heim....mánuður eða svo, þá fer ég til Costa del Sol í góðra vina hópi :D get ekki beðið !!

Katerina á afmæli í dag... til hamingju aftur !! hlakka svo til að eyða sumrinu með þér í Reykjavík :D


besos, Dagný.

mamma og pabbi

23. maí 2008 klukkan 13:50
sakna þeirra :(



það var svo gaman á síðustu helgi :)



Dísa:)


Púmba varð fyrir lest og lét lífið :(

Ég vona að hundurinn minn verði ekki búinn að gleyma mér þegar ég kem til baka..hann er aðeins of sætur.

Me and Mr. Jones

21. maí 2008 klukkan 20:11
Hver er þessi Mr. Jones?

Allavegana..jú það er kominn tími á smá blogg:)

Á síðustu helgi var ég í Alicante! víhí þetta var skemmtilegasta helgi í heimi! Fór á laugardagsmorgninum því ég var að vinna á föstudagskvöldinu, var SJÚKT stressuð að sofa yfir mig og missa af lestinni, svo að ég svaf nánast ekki neitt þessa nótt hehe, aaaallavegana þá vaknaði ég, keyrði útá lestarstöð og tók lestina kl 9:20! þegar klukkan var að verða hálf 2 var ég komin til Alicante. Á lestarstöðinni í Alicante beið mín mjög falleg sjón! Ljóshærð skvísa sem ég hafði saknað mjöög mjög mikið...það var svo gaman að hitta Dísu:) og SKRÝTIÐ.
Við tókum leigubíl á hótelið sem mamma mín og pabbi voru á þessa helgi.. ég er ekki frá því að það hafi verið ennþá skrýtnara að hitta þau! Hafði auðvitað ekki séð þau í 2 og hálfan mánuð :) en það var mjög gaman, við 4 fórum saman út að borða og svo fórum ég og Dísa í íbúðina hennar og komum auðvitað við í búð, fylltum ísskápinn af ljúfum drykkjum.
Við vorum báðar svo þreyttar að við lögðum okkur í 2 tíma eða eitthvað og þegar við vorum rétt svo vaknaðar og áttum eftir að fara í sturtu og hafa okkur til og allt það var fyrsti gesturinn að mæta í partyið sem hún var búin að láta fullt af fólki vita af...JODER. Við gerðum okkur til á met tíma:) Svo kom fleira og fleira og fleira fólk frá danmörku, þýskalandi, kóreu, frakklandi, bandaríkjunum, hollandi og allskonar og svo kom þrifakonan......sem var stress því að augljóslega má ekki halda party í húsi sem er verið að leigja á vegum skólans, en það reddaðist, konan var chilluð.
Fyndið að fólkið sem býr á hæðinni fyrir neðan setti kampavínsflösku við dyrnar okkar, dingluðu og hlupu svo í burtu! við vorum mjög ánægðar og skáluðum í botn.
Vorum í íbúðinni til svona 2 og þá fóru allir niðrí bæ.. fórum á alla skemmtilegustu staði borgarinnar og ég, Dísa og Jesper hinn danski fengum okkur Kebab :D. Við vorum báðar svo ánægðar að vera LOKSINS að tala íslensku að við bulluðum í öllum í kringum okkur og reyndum að útskýra íslenska brandara, það hló enginn nema við tvær :D
Við skriðum heim þegar gamla fólkið var komið á fætur og farið í göngutúr og sváfum fram á miðjan næsta dag!
Fórum í lunch með mömmu og pabba og svo ákváðum við að prófa lestarkerfið í borginni..fórum í metroið og fórum svo bara út á eitthverjum stað til að skoða..frekar spes :D en gaman. Fengum okkur makkara í kvöldmat og fórum svo á kaffihús með Eduardo frá Paraguay. Flippað....lúlluðum og daginn eftir fór ég að hitta mömmu og pabba :) svo var helgin bara á enda.... það var ömurlegt að kveðja þau. Dísa kom með mér á lestarstöðina síðan og svo var eg bara farin..Var með mjög góða móttökunefnd 4 tímum seinna hérna í Ciudad Real... krakkarnir mínir komu hlaupandi á sprettinum til mín þegar þau sáu mig...oo það var gaman:)

Hlakka til að fara aftur þangað þann 12.júní:) klikkuð helgi og kynntist líka fullt fullt af mjög skemmtilegu fólki.


Núna eru bara 6 dagar þangaðtil að Ingibjörg kemur til mín...sem þýðir að ég sé á leiðinni til madridar á þriðjudaginn að sækja hana :) ví ég hlakka til :D ætlum líklegast að eyða seinnipartinum og kvöldinu í madrid líka og koma svo hingað heim og eiga sjúklega skemmtilega viku...

Allavegana, nenni ekki að skrifa meira..happy times!!

?

15. maí 2008 klukkan 18:01
Afhverju er búið að spurja mig mjög oft síðan ég kom hingað hvort ég sé frá Rúmeníu ?


 ég er á leiðinni á tónleika á eftir:) ví.

Alicante um helgina!! blogga þegar ég kem heim á mánudaginn því að ég hef ekki frá neinu að segja núna :D




You're my flowers and sunshine, cherrys and redwine.

08. maí 2008 klukkan 17:02
Það er farið að styttast í að þetta verði búið.... im confused! langar að vera dálítið lengur en langar samt að hitta fólkið mitt á íslandi :)

bara 5 vikur eftir í Ciudad Real og svo 2 vikur í ferðalag með fjölskyldunni minni svo að það eru 7 vikur í að ég verði komin á klakann, á ég að vera glöð eða fúl ?!?!
Annars eru bara 9 dagar í ferðalagið mitt!!:D ég er að deyja ég hlakka svo til.. ætla að gista hjá Dísu og svo verða mamma og pabbi líka í Alicante á sama tíma svo að ég hitti gömlu líka :D snilld. 2 in 1 !
Svo 27.maí kemur Ingibjörg Elín til mín..mmm erum svona að byrja að plana hvað verður gert..allavegna er skoðunarferð um Madrid á dagsrkánni :D nice.

Veðrið er steik..var 33 stiga hiti í gær  og svipað í fyrradag og svo í dag kom RIGNING, reyndar bara fyrripart dags, núna er komin sól og svaka gott veður=)

Eitt sjúklega fyndið.. orðið tío/tía þýðir frændi/frænka.. og þetta orð er auðvitað notað yfir frænda og frænkur, en hjá unga fólkinu er þetta svona einsog að segja "gaur" ... það er sagt "hola tío"  og svoleiðis...gætuð þið vanist því að heilsa vini ykkar sem "hæ frændi" eða "hæ frænka" við vinkonur ykkar..?!? ég get ekki sagt þetta :D eflaust er ég mjög lame á þeirra mælikvarða.

Annars held ég að ég sé á leiðinni út í kvöld með vinkonu minni..á smá tónleika =) en já eg ætlaði bara að skrifa e-ð smá.
Bless á þig.


Helgin að hverfa á braut

04. maí 2008 klukkan 00:28
Jæja kominn sunnudagur strax, eða svona..

Helgin var æði!! Byrjaði í rauninni á fimmtudeginum því að þá var 1.maí og frí í skólum og svoleiðis, svo á föstudeignum var líka frí í skólanum hjá krökkunum, sniðugt :)

Í gær var aðeins of gaman! Masha sótti mig og við fórum í hennar bæ (sem er 5 min frá) sem heitir Miguelturra, how nice. Lögðum af stað labbandi frá hennar húsi með sangria to go, algjörar dömur,  í alls ekki neitt fínum fötum. Stefnan var sett á bar þar í bæ þar sem við ætluðum að hitta vin. Vorum voða duglegar að drekka sangria-ið á leiðinni, þar sem að það er ólöglegt að drekka á götunni þá kláruðum við það á no time. Þegar við komum í litla miðbæinn tók við okkur mjög svo óvænt gleði, hoppukastalar og hringekjur (hvernig skrifar maður það?) fyrir börn útum allt, indverskt fólk með sölubása, indversk tónlist og fólk að dansa á götunni. Sangria seitlaði í blóði okkar og við sáum gullið tækifæri í hoppuköstulunum og hringekjunum sem við gátum ekki látið fram hjá okkur fara! Við fórum að hringekju-gaurnum og sögðumst vilja kaupa tvo miða. Hann kinkaði kolli og sagði okkur hvað það kostaði, og leitaði síðan af börnunum okkar, engin börn voru meðferðis, hann spurði hvar börnin væru og við sögðum að ætlunin væri nú að við myndum fara í hringekjuna, engin börn í kvöld, þá sagði hann að við værum alltof stórar. Við þökkuðum pent fyrir og sungum "big girls, you are beautiful" á meðan við löbbuðum í burtu. Fórum að hoppukastala-konunni og spurðum hvort við værum kannski líka of stórar til að mega hoppa, hún hló og sagði að maður væri aldrei of stór til þess að hoppa! Svo að skórnir fengu að fjúka og við eyddum næstu 15 mínútum í að hleypa our inner child out og hoppuðum og hoppuðum og leyfðum heiminum að snúast í hringi.
    Gleðin tók enda þegar konan flautaði háu ískri úr ógeðslegri flautu, við máttum ekki vera lengur. JODER! jæja við héldum okkar leið áfram og fórum á þennan bar og hittum skemmtilegt fólk. Tíminn leið og við fengum ógeð af Miguelturra og ákváðum að fara til Ciudad Real aftur á svona aðal götuna þar. Fórum og dönsuðum og kynntumst fullt af fólki og höfðum mjög gaman. Fundum okkur svo sitjandi í grasinu í stórum park sem er þarna eitthverstaðar, með sangria við hönd að spjalla um hvað lífið væri æðislegt.

Toledo y Madrid

28. apríl 2008 klukkan 22:14

Í gær var sjúkt gaman! Ég og Masha fengum heilan sunnudag í frí og ákváðum að fara í roadtrip og keyra til Toledo sem er borg sem er klukkutíma í burtu, ætluðum að fara og skoða og vera túristar og svona og koma svo til baka seinnipartinn! Það plan gekk ekki alveg nógu smooth fyrir sig, sem er jú bara gott!

Við semsagt lögðum af stað frá Ciudad Real kl 8 á sunnudagsmorgni, þeir sem þekkja mig vita að það er mjög ókristilegur tími fyrir mig! ég vaknaði líka kl 10 mín í 8 og beint útí bíl bara hehe. En já lögðum af stað og vissum ekkert, eltum bara skiltin ! komum að bæ sem heitir Orgaz eftir ca hálftíma keyrslu..minnsti bær ever og við ákváðum að stoppa og fá okkur kaffi og gá hvort að það væri eitthvað hægt að túristast þarna, neeei kaffið þarna var vont og eftir smá rölt komumst við að því að eina sem merkilegt var að sjá þarna var kirkja sem var ekkert það flott og fólkið sem var að VINNA við kirkjuna vissi ekki einusinni hvenær hún var byggð :D svo að við héldum leið okkar áfram og komum til Toledo hálftíma seinna.. WOW þetta er klárlega ein flottasta borg sem ég hef komið til! gamli bærinn er byggður í eitthverju fjalli eða eitthvað, göturnar voru 1,7-1,9 metrar á breidd og eitthvað, fyrst vorum við keyrandi þarna og svo bara já nei það er ekki séns svo að við lögðum bílnum og löbbuðum um borgina í 4 tíma ! Sáum allskonar kirkjur úr alskonar trúarbrögðum, klaustur hehe og bara eg veit ekki hvað :D hittum 2 ástralska stráka sem voru í heimsreisu, sænskan mann sem gaf okkur kortið sitt því við vorum villtar og breskar konur sem höfðu einusinni komið til íslands, en þeim langaði ekki aftur vegna þess að þær sögðu að það var svo helvíti erfitt að finna áfengi á íslandi...bara selt í 2 búðum sögðu þær.
En já semsagt eftir 4 tíma göngu settumst við niður og þá fengum við alltíeinu þá hugmynd að keyra bara til Madrid!! það væri nú bara klukkutími lengra, svo að við ákváðum að skella okkur. Freaky að þegar maður er á hraðbrautinni þá er svona digital skilti sem sýnir hvað margir hafa dáið á þessari hraðbraut á þessu ári! á sunnudaginn var það 84 manns.
Svo komum við til Madrid - its huges !!! note to self: aldrei aftur keyra til Madridar, taktu lest!
Þegar við komum þá villtumst við auðvitað útum allt..eða er hægt að villast þegar maður veit ekki leiðina fyrir ? allavegana þá eru 8 akgreinar i hvora leið, og hví ekki að hafa bara hringtorgin áttflöld líka ha.. hmm.
Náðum á endanum að leggja bílnum eitthverstaðar útí rassgati, fundum nice fólk sem sagði okkur hvert við gætum farið í metro og þaðan niðrí miðbæ..VÍ! það gekk vel fyrir sig og stuttu seinna stóðum við í miðborg Madrid. Fórum að versla:D nice. Fundum svo eitthvern crappy veitingastað og fengum okkur að borða, svo STARBUCKS mmm. Sátum hjá eitthverjum þjóðverjum þar, svaka stuð! við vorum mjög alþjóðlegar, kynntumst fullt af fólki frá fullt af löndum :)
En já svo var bara kominn tími á að fara til baka .. fundum metroið, fundum bílinn - allt áfallalaust, þangaðtil að við ætluðum að finna leiðina útúr Madrid! wow... var sjúkt vesen og við sungum "dont worry be happy" allann tímann. Á endanum vorum við á rauðu ljósi og taxi við hliðiná okkur svo að við skrolluðum rúðunni niður til að spurja hvert við ættum að fara og hann sagði okkur að fara á M-30 sur..og við bara hmm okay við eigum aldrei eftir að finna það, svo á næsta skilti stóð það! við vorum aðeins of ánægðar og brunuðum í burtu frá stórborginni :)
Keyrðum í klukkutíma og fórum framhjá Toledo, keyrðum í hálftíma í viðbót og þá mundum við eftir Orgaz!! stoppuðum þar aftur og bærinn var svo dauður, ekki séns að finna manneskju þar, svo að við ákváðum bara að blasta tónlistinni okkar og dansa á götunni....baile en la calle, por la noche baile en la calle........ mm lífið er ljúft. Héldum áfram og stoppuðum í mjög svo dimmum skógi, skoðuðum stjörnur og dönsuðum með þeim...það var greinilegt að okkur langaði ekki að þessi dagur myndi enda hehe! it was the best :)
allavegana, þá var þetta mjöög svo skemmtilegt 17 klukkutíma ferðalag. gaman að því að ég talaði ekki eitt íslenskt orð í heilan sólahring hehe.

Nokkrar myndir..nenni ekki að setja allt inn því að þetta eru svo týpískar túristamyndir að þú gætir alveg eins bara gúgglað nöfnin á borgunum :D



eitthver kirkja


halló þú


mmm frappuchino á starbucks..it was gooood!!

ekkert smá flott útsýni á bakvið!! wow


wooow hvað skeði fyrir þessa mynd?:S okay


MK fólk..afhverju eru bjórkvöldin ekki á þessum shooters frekar heldur en engihjalla???:D


jájájájá

speees hús.


Stuð að ísland sé í EFTA...fjármögnuðu þessa smukke byggingu :)




Prófíll

  • Nafn: Dagný Jóhannsdóttir
  • Netfang: dagny_1@hotmail.com
  • Staður: Ciudad Real
  • Heimilisfang: Calle Olmos 17, 13002 Ciudad Real, Espana.
  • Atvinna: Au Pair

HomeSweetHome

Spánn